07.05.2012 23:04
Vorið
Það verður nú aldeilis munur þegar búið verður að skipta um rör og malbika hér.

Það á víst að malbika Brekkugötu líka, og veitir ekki af.
Vel gert Húnaþing vestra.

Og Krummi valdi sér sérkennilegan stað til að dvelja með ungum sínum.
Hann útbjó sér laup í hörpunni hans Gulla á Söndum. Já þessi græja er kölluð harpa en hún er notuð til að þess að harpa/sigta möl og þess háttar.

Skrifað af Palla.
01.05.2012 13:10
Afsakið biðina
Þessa dagana standa margir bændur í jarðrækt. Best er að nýta tímann núna því senn líður að sauðburði og þá verða allir sauðfjárbændur afar uppteknir við að taka á móti laununum sínum.
En flestir gefa sér sem sagt tíma til þess að plægja, herfa og sá í tún sín áður en sauðburður hefst.
Þetta gera kúabændur líka og sjálfsagt einhverjir fleiri.
En á Bessastöðum var verið að loka skurði sem er svo sem ekki í frásögu færandi, nema helst fyrir það að í hann var ekki sett rör til að leiða vatnið eftir honum heldur grjót. Ofan á grjótið var svo settur dúkur/rúlluplast og svo fínna efni og mold ofan á dúkinn/plastið.
Með þessu voru sameinuð tvö stykki, annað þeirra um 2,6 hectarar en hitt um 1 hectari. Túnið stækkar um 0,2 hectara í viðbót vegna þess svæðis sem skurður og ruðningur tóku fyrir aðgerð.
Þannig að þetta stykki er því orðið um 3,8 hectarar. (Mælingar gerðar með Google Planimeter)
Slatti af myndum frá þessu skemmtilega verkefni eru í myndaalbúminu. Smellið á mynd hér að neðan til að skoða fleiri.

Þessum skurði var lokað. Í honum var lítið vatnsflæði en þó smáræði sem hvarf niður í jörðina í miðjum skurðinum.

Til hægri á myndinni sést í grjóthrúgu en hún var notuð að hluta til í þennan skurð.

Þessi flokkunarskófla var notuð til að flokka stórt grjót frá litlu grjóti og salla.

- 1